Tekno Ford 1000 merktur Roða Þeir bílar sem vekja líkast til hvað mesta athygli íslenskra safnara, eru þeir bílar sem á einhvern hátt tengjast Íslandi. Þeir sem ég veit af eru : Ford Taunus 1000 panel van lítill sendiferðabíll, sem framleiddur var af Tekno í Danmörku fyrir margt löngu. Þessi bíll er Type 1 Ford Taunus framleiddur á árunum 1957-66 hann er 'code 1' , sérmerktur versluninni Roða, eins og sjá má á myndinni hér til vinstri. Þessi bíll hefur örugglega ekki verið framleiddur í stóru upplagi, danskur Tekno sérfræðingur sem ég spurði út í þetta hafði aldrei séð hann eða heyrt af honum. Þessi bíll var á uppboði í Þýskalandi í kringum 1985. Ég las um þetta uppboð í ensku safnarablaði, þaðan er myndin fengin, en þá hafði uppboðið þegar farið fram og því auðnaðist mér ekki að gera tilboð í hann.
Tekno Ford 1000 endurgerð a rauður/gulur Þar sem ekki hafa fundist litmyndir á netinu af Tekno Ford 1000 bílnum, þá er ekki vitað sem stendur í hvaða lit sá bíll er. Það er freistandi að ætla að hann hafi verið rauður/gulur eins og Volkswagen "rúgbrauðið" sem Tekno gaf út síðar. Því var bíllinn endurgerður í þeim lit af heimasíðuhöfundi.
Tekno Ford 1000 endurgerð b rauður/hvítur En það er þó jafnvel líklegra að Tekno hafi notað litasamseningu sem þá þegar var í framleiðslu hjá fyrirtækinu. Helst kemur til álita rauður/hvítur bíll eins og Tekno notaði t.d. fyrir Ota haframjöls auglýsingabílana. Til þess að hafa vaðið fyrir neðan mig þá var Fordinn líka endurgerður rauður/hvítur.
Tekno Vw merktur Roða Volkswagen Van einnig framleiddur af Tekno. Um þennan bíl eru til meiri upplýsingar. Í bókinni Tekno Samlerkatalog sem gefin er út af Samlerbörsen 1997 segja höfundarnir Hans Hedegard og Dorte Johansen að hann sé númer 543-43 og sé framleiddur einhverntíma á árunum 1959 til 1972. Hann er Type 2 af Volkswagen frá Tekno. Samkvæmt því væri freistandi að áætla að Ford 1000 bíllinn sé númer 546-?? og sé framleiddur á árunum 1957 til 1966. Væntanlega hafa þessir tveir bílar verið framleiddir á svipuðum tíma, þannig að framleiðsluár Volkswagen bílsins þrengjast þá niður í það sama þ.e. 1959 til 1966. Ef einhver veit meira um þessa bíla, þ.e. hvenær þeir voru framleiddir, hversu stórt upplagið var og hversu margir af þeim komu til Íslands, þá væri fróðlegt að fá að heyra af því. Þessi bíll var á uppboði á Ebay í mars 2005, en því miður lánaðist ekki að ná honum til Íslands. Myndin hér til vinstri er úr bókinni Tekno Samlerkatalog.
Tekno 'miðstéttar' mannsins, endugerður Tekno Endurgerður Tekno Volkswagen. Þessi bíll er endurgerður af heimasíðuhöfundi. Bíllinn er fenginn á uppboði á www.qxl.dk, um var að ræða bíl sem hafði fengið yfir sig málningu og því ekki gjaldgengur með þeirri skreytingu sem á honum hafði verið. Það þarf að bora upp hnoð í botni Tekno bílana til að opna þá fyrir sprautun, því er auðvelt að sjá hvort Tekno bílar eru upprunalegir eða endurgerðir. Fyrir þá sem huga að endurgerð t.d. Tekno bíla þá er oft hægt að ná í varahluti í þessi gömlu módel. Ég pantaði Roða þrykkimyndirnar á heimasíðunni www.teknobil.dk þar er hægt að fá fjölda þrykkimynda á hina ýmsu Tekno bíla, ásamt fjölda varahluta, reyndar eru ekki til dekk þar, en dekk undan Corgi, sem hægt er að panta frá Englandi, passa undir marga af eldri Tekno bílunum. Það er gaman að geta þess að sá sem heldur úti þessari Tekno síðu hefur ekki séð Roða bílana og þekkir enga sem hafa barið þá augum. Hann segist vita af nokkrum endurgerðum bílum, en jafnvel þeir séu sjaldséðir. Þetta segir nokkuð um hversu fágætir þessir bílar eru.
Tekno 'fátæka' mannsins, Hongwell CODE 3 Volkswagen Van framleiddur af Hongwell, sprautaður í sömu litum og með samskonar þrykkimyndir og Tekno bíllinn. Þetta er dæmi um 'code 3' bíl, þ.e. bíl breytt án leyfis. Ekki er um eiginlega fölsun að ræða þar sem Hongwell líkanið er frábrugðið Tekno að mörgu leyti, svo sem krómfelgur, krómaðar ljósaumgjarðir, svo og speglar og loftnet sem ekki eru á Tekno bílnum. Þessi bíll er búinn til af heimasíðuhöfundi.
Lego Dodge frá Reykjalundi Dodge vörubíll framleiddur með leyfi Lego hjá Reykjalundi í kringum 1957-59. Ekki nákvæmasta líkan sem um getur en nokkuð skemmtilegur samt. Vörubílarnir voru framleiddir í tveimur lita samsettningum, rauðir og hvítir merktir Esso og rauðir og gulir merktir Shell. Olíutankurinn er festur á grindina með smellu og því auðvelt að skipta og setja í staðinn ýmiskonar útbúnað. Vörupall með lágum borðum, fjórhjóla aftanívagn með háum borðum, langan vöruvagn með hásingu og langan olíutank með hásingu.
Lego Dodge frá Reykjalundi Eftir nokkur póstsamskipti við amerískan Lego safnara Clarke Bakker varð ég margs vísari um Dogde vörubílana og fann nokkrar myndir á netinu af þeim. Hér eru tveir "flatbed" bílar frá Shell og Hinu Íslenska steinolíufélagi. Clarke sendi slóðina á þessar myndir, en myndirnar er að finna á miniland.nl, merkilegt nokk voru þessir bílar merktir Finnlandi. Frá Reykjalundi komu líka Volkswagen bjöllur í 1/38, en því miður hef ég ekki náð í þokkalega mynd af þeim.
Ferguson T20 frá Reykjalundi Reykjalundur hefur verið nokkuð sterkur á íslenskum leikfangamarkaði upp úr 1950. Flestir leikfangakassar hafa líkast til innihaldið nokkra bíla, báta, dúkkur eða kubba frá þeim ágæta framleiðanda. Hér er mynd af Ferguson TE20 frá Reykjalundi. Þetta er í mínum augum "traktorinn", bæði er þetta fyrsti traktorinn sem ég man eftir á Siglufirði og eins átti ég svona leikfang með tilheyrandi plóg og herfi. Ef smellt er á Ferguson TE20 ásamt fylgihlutum, þá kemur stærri mynd, hvar traktorinn sést ásamt fylgihlutum og umbúðum. Reyndar var herfið sem ég átti grátt en ekki rautt eins og á myndinni. Þessar myndir eru af síðunni Lauritz.com sem er uppboðsfyrirtæki. Þar var þessi gripur boðinn upp í apríl 2014, áætlað virði var 800 sek en gripurinn var sleginn á 12,500 sek eftir mikla baráttu tveggja safnara.
Renault L4 d'ISLANDE Renault L4 framleiddur af Vitesse hann er númer L141. Þessi bíll tók þátt í leiðangri rúmlega 20 slíkra bíla til Íslands í kringum 1985. Þeir óku þvers og kruss um landið meðal annars yfir hálendið. Ég náði í þennann bíl 1998 , þá eins eða tveggja ára gamlann. Þessi bíll hefur sjálfsagt ekki verið framleiddur nema í eitt ár. Hann virtist ekki seljast vel , enda ekki höfðað sterkt til margra. Hann var lengi fáanlegur á safnaramörkuðum, en er væntanlega uppseldur núna.Bíllinn er code 1.
Cadillac 452 1931 Eðal ehf. - Katla, sem sérhæft sig í framleiðslu og innflutningi á vörum fyrir matvælaiðnað, ásamt framleiðslu og þróun lausna fyrir bakara-, kjöt- og fiskiðnað, svo vitnað sé í heimasíðu fyrirtækisins, hélt upp á fertugs afmælið sitt 1994 með því að láta framleiða fyrir sig bíl til gjafa, handa viðskiptavinum sínum. Þetta var Cadillac 452 Van, framleiddur af Solido. Bíllin er code 2, þ.e. Katla lét fyrirtæki sem sérhæfir sig í kynningarvörum fyrir fyrirtæki, merkja bílinn fyrir sig. Bíllinn er með "Tampo" merkingum, þ.e. ekki með þrykkimyndum heldur eru merkingarnar prentaðar beint á bílinn. Upplagið var á bilinu 500-1000 stykki.
Cadillac 452 1931 Því miður á ég ekki eintak af bílnum sem var framleiddur fyrir Kötlu, en ég fékk gefins sýnishorn af bíl sem ekki fór í framleiðslu. Hinn finnst vonandi seinna.
Ford AA Frimerkjasalan Frímerkjasalan gaf út sinn fyrsta bíl 22/05 2003. Þetta er módel af Ford AA póstbílnum sem núna er á Samgöngusafninu á Skógum . Bíllinn er frá Lledo í 1/64 ekki sá nákvæmasti sem sést hefur en eigi að síður góð byrjun hjá Frímerkjasölunni, númer hans er B101, upplagið er 2000 stykki. Með bílnum fylgir frímerki með mynd af bílnum ásamt póstkortum, þannig að allur er pakkinn hinn glæsilegasti. Eini gallinn er kannski að fyrir einhver mistök í verksmiðjunni þá var bíllinn framleiddur með stýrið hægra megin, þrátt fyrir að sýnishornið sem Frímerkjasalan fékk í hendurnar hafi verið með það vinstra megin. Myndin hér til vinstri er að bílnum með stýrið hægra megin.
Ford AA Myndin hér til vinstri er af sýnishorninu, fyrir utan að vera með stýrið vinstra megin þá eru gluggarnir hálfskyggðir.
Renault Eurovan Frímerkjasalan gaf út sinn annan bíl 2004. Þetta er módel af Renault Master póstbíl samskonar og Pósturinn er með í notkun núna, númerið er B102, upplag 1000 stykki. Þessi bíll er eins og sá fyrri frá Lledo og er í 1/64. Merkingar eru snyrtilega "Tampo" prentaðar. Ljós eru samlit, það hefði vissulega lyft bílnum aðeins að vera með þau máluð í silfri og appelsínugulu. Með bílnum fylgir póstkort með mynd að bílnum í 1/1. Vonandi getum við búist við einum bíl á ári frá Frímerkjasölunni.
Ford Transit Myndin hér til vinstri er af sýnishorninu sem Frímerkjasalan fékk. Það var Ford Transit sem hafði ekki verið í notkun hjá póstinum og því var Renault Eurovan valinn frekar.
Renault Eurovan afbrigði Afbrigði við þennan bíl var gefið út seinni part árs 2004, það er um sama bílinn að ræða, nema hvað hann er ekki merktur á afturhurð með "Nr 2" og honum fylgir ekki upprunavottorð. Hann er númer B102c. Upplagið var 1500 bílar, 1100 var dreift til fyrirtækja en 400 voru settir í sölu til safnara. Mynd af afturhurðum þessara tveggja bila er hér til vinatri.
Bedford 30 CWT Box van Þriðji bíllinn frá frímerkjasölunni B103 var gefinn út 26/05 2005. Hann er af tegundinni Bedford 30 CWT Box van árgerð 1950, stærðin er eins og á fyrri bílum um 1/64 þótt að á heimasíðu frímerkjasölunnar komi fram að hann sé 1/43. Upplagið er 1500stykki. Bíllinn er sagður samnefnari stærri flutningabifreiða sem Pósturinn, þá Póstur og sími notaði í rekstri sínum milli 1950 og 1960. Það hefði vissulega verið skemmtilegra ef það hefði fylgt með mynd af fyrirmyndinni, en útgáfa Frímerkjasölunnar ræðst nokkuð af því hvaða bíla hún getur látið framleiða fyrir sig á fyrir skikkanlegt verð.
Bedford 30 CWT Box van Myndin hér til vinstri er af sýnishorninu sem Frímerkjasalan fékk. Eini munurinn á sýnishorninu og bílnum sem fór í framleiðslu eru felgurnar, hvítar á sýnishorninu en svartar á þeim sem framleiddur var.
Mack lorry Fjórði bíllinn frá frímerkjasölunni B104 var gefinn út 15/07 2006. Þetta módel af Mack Sac vörubíl er samnefnari fyrir flutningabifreiðar sem fluttu póst á fyrstu árum bílaaldar í Reykjavík. Þ.e. á bilinu 1920 til 1930. Upplagið er 1224 stykki. Með bílnum fylgir póstkort með mynd af vörubíl, Chevrolet 1928 árgerð sem fljótt á litið er ekki óáþekkur Mack bílnum.
Mack lorry Myndin hér til vinstri er af sýnishorninu sem Frímerkjasalan fékk. Það er ekkert frábrugðið þeim bíl sem framleiddur var, fyrir utan að vera með hlass af pokum á pallinum.
Landrover Fimmti bíllinn frá frímerkjasölunni B105 var gefinn út í maí 2007. Þetta módel af Landrover jeppa er samnefnari fyrir farartæki sem landpóstar hafa áratugum saman notað í dreifbýli á Íslandi. Upplagið er 1296 stykki. Með bílnum fylgir póstkort með mynd af Landrover jeppa sem reyndar er ekki af sömu árgerð. Þetta er fyrsti bílinn frá Frímerkjasölunni sem er í staðlaðri stærð þ.e. 1/43. Vonandi verður þar framhald á. Af nógu er að taka, Lledo framleiðir fleiri bíla í 1/43 og eins væri hægt að hugsa sér bíla frá Oxford diecast. Það væri ekki amalegt að næsti bíll væri Volkswagen rúgbrauð, Ford Anglia sendiferðabíll eða Austin mini sendiferðabíll, í gráum lit og með bláa sporöskjulagaða Póst og símamerkið á hurðunum.
Bedford rúta Sjötti bílinn frá frímerkjasölunni B106 var gefinn út í mars 2008. Um er að ræða bráðhuggulega rútu sem, svo vitnað sé í heimasíðu frímerkjasölunnar, " er módel af Bedford OB 1950 áætlunarbíl samnefnara bíla sem önnuðust farþega- og póstflutninga milli Akraness og Akureyrar. Módelið er eitt af 2000 tölusettum eintökum sem Íslandspóstur gefur út. Upprunavottorð og sérhannað póstkort án frímerkis fylgir bílnum." Módelið er í 1/76 sem er algeng safnarastærð fyrir rútur og stærri bíla.
Fólksvagen rúgbrauð Sjöundi bílinn frá frímerkjasölunni er Volkswagen Van DG73 (DG=Days gone) gefinn út 4 nóvember 2010. Upplagið er 1500 tölusett eintök, með fylgir upprunavottorð. Stærðin er 1/64 sem er nokkuð algeng söfnunarstærð. Þetta er fyrsti bíllinn í röð þemabíla, fyrsta þemað er eldgos. Bíllinn er skreyttur 6 eldgosafrímerkjum og er bráðhuggulegur. Líkast til sá fallegasti sem hefur komið frá frímerkjasölunni. Það má kannski deila um skreytinguna , en þetta er t.d. sú leið sem Álandseyjapósturinn hefur farið og bílar þaðan seljast yfirleitt fljótlega upp.Það er óskandi að næstu þemabílar verði líka 1/64.
DAF LF Áttundi bílinn frá frímerkjasölunni er DAF LF gefinn út maí/júní 2013. Upplagið er 1200 tölusett eintök, með fylgir upprunavottorð og póstkort. Stærðin er 1/87 sem er algeng söfnunarstærð. Á heimasíðu Frímerkjasölunnar stendur "Bíllinn er samnefnari fyrir flutningabíla sem Pósturinn notar í rekstri sínum. Bílarnir annast póstflutninga á höfuðborgarsvæðinu, til Suðurnesja og Selfoss." Póstkortið gefur til kynna að um sé að ræða Renault bifreið, en það breytir svo sem engu. Bíllinn er Tampo prentaður, gullfallegur, þeir fara bara batnandi bílarnir frá frímerkjasölunni.


Nokkur Íslensk fyrirtæki hafa á seinni árum látið framleiða fyrir sig bíla, til auglýsinga og gjafa, ég veit af þremur flutningafyrirtækjum sem það hafa gert, vafalaust hafa fleiri fyrirtæki gert þetta , það væri gaman að fá fréttir af því og ekki væri verra ef hægt væri að nálgast þannig bíla.

Volvo frá flytjanda Flytjandi hefur látið fjöldaframleiða fyrir sig tvo bíla. Volvo með stóran tengivagn, upplag 500 stykki. Þessi bíll er með límmiðum á hliðunum og er í 1/87. Framleiðandi er Adtruck. Heimasíðuslóð Flytjanda er www.flytjandi.is
Óþekktur frá flytjanda Seinni bíllinn frá Flytjanda, upplag 2000 stykki. Bíllinn er að öllum líkindum DAF. Þessi bíll er 1/87 og er með "Tampo" prentun á hliðunum. Framleiðandi er Adtruck.
Mercedes benz Actros Hér til vinstri er mynd af sýnishorni sem Flytjandi fékk, þetta er Mercedes benz Actros með tengivagni, þessi bíll fór ekki í framleiðslu. Þessir bíll er með límmiða á hliðunum og eru í 1/87. Framleiðandinn er Adtruck.
Scania frá Landflutningum Landflutningar létu framleiða fyrir sig Scania 113M ásamt tengivagni. Hliðarnar eru "Tampo" prentaðar. Bíllinn er í 1/87, framleiddur af PP models. Um fjölda framleiddra bíla er ekki vitað, en vonandi verður hægt að finna út úr því. Heimasíðuslóð Landflutninga Samskip er www.landflutningar.is
Mercedes Benz frá Jónum Transport Jónar Transport létu útbúa fyrir sig Mercedes benz Actros ásamt tengivagni. Hliðarnar eru með límmiðum. Bíllinn er í 1/87, framleiddur af Elawo models. Fyrirtækið Wivapromotion B.V. sá um skreytingar á bílnum. Alls voru framleiddir 500 bílar , hvar af 350 fóru í dreifingu hérna heima og 150 erlendis. Heimasíðuslóð Jónar Transport er www.jonar.is
Man TG frá Samskip Samskip fluttningabíll og gámur í 1/160 alfarið úr plasti. Bíllinn er framleiddur af Herpa
Mercedes Benz frá Samskip Samskip fluttningabíll og gámur í 1/87 alfarið úr plasti. Bíllinn er framleiddur af Herpa
Mercedes benz frá Vörubíl. Vörubíll lét framleiða fyrir sig 1000 stykki af Mercedes Benz sendibíl. Bíllinn virkar full lítill til að vera í 1/87 en erfitt að segja til um það. Hliðarnar eru "Tampo" prentaðar. Framleiðandinn er merkilegt nokk sá sami og framleiðir fyrir Flytjanda þ.e. Adtruck.
SVR Vetnisstrætisvagn sem Strætó bs er búið að vera með í akstri í nokkur ár. Þetta er eini bíllinn úr pappa sem skráður er í safnið, hann er bara "fjarska fallegur" fljótt á litið. Stærðarhlutföll um 1/64.

Nokkrir bílar tengdir Íslandi hafa verið að stinga upp kollinum á Ebay, þetta eru code 1, code 2 og code 3 bílar. Mér hefur lánast að ná í nokkra.

Iceland seafood Iceland seafood afturhurð International trukkur með tengivagni, frá Winross, merktur Iceland seafood, upplag óþekkt en væntanlega ekki mjög stórt. Þessi bíll er frekar grófur, sama módel er til merkt hinum og þessum fluttningafyrirtækjum í Bandaríkjunum.


Jaguar Jaguar XKR sem notaður var í Bond myndinni Die another day sem tekin var hér á landi 2002. Bíllinn er á íslenskum númerum OR 203. Bíllinn er framleiddur af Minichamps. Hann er líka til í 1/18 frá ERTL.


Jaguar afturendi Jaguar ljósmynd Íslenska númerið aftan á bílnum.


Iceland verslunarkeðjan Ford Transit frá Lledo, merktur Iceland verslunarkeðjunni í Englandi, kannski dulítið langsótt, en þessi keðja er/var jú í eigu okkar íslendinga.


Síðastur en ekki sístur er Volvo S60 framleiddur af Hongwell, merktur lögreglunni. Þessi bíll er sjálfsagt code 1. Framleiddur af Hongwell fyrir Ítalska útgefandann Fabbri , sem gefur út allskonar safnaraseríur, þar á meðal seríu af lögreglumbílum víðs vegar frá í veröldinni. Bíllinn frá Fabbri kemur ekki í hefðbundnum Hongwell pakkningum heldur er hann pakkaður með 8 síðna blaði sem er í A4. Bíllinn og blaðið er að sögn gefinn út í 700 eintökum. Hann var síðan líka í Hongwell pakkingu, upplag óþekkt. Hér að neðan eru myndir af bílnum og blaðinu sem fylgdi honum. Ef smellt er á myndirnar af blaðinu fæst stærri mynd.


Hliðarsýn framsýn aftursýn
page01.jpg (119KB) page02.jpg (154KB) page03.jpg (149KB)
page04.jpg (115KB) page05.jpg (97KB) page06.jpg (153KB)
page07.jpg (147KB) page08.jpg (127KB) page09.jpg (137KB)
page10.jpg (147KB)


Einn Subaru merktur lögreglunni var á Ebay, hann er code 3 annar af tveimur sem búinn var til, ansi vel gerður. Sá endaði hér á Íslandi en ég á eftir að verða mér út um mynd af honum.

Það hleypir óneitanlega lífi í bílasöfnunina að fyrirtæki skuli vera farin að láta framleiða fyrir sig svona auglýsingar. 1/87 stærðarhlutfallið hentar ágætlega vel til þess, ódýrt í framleiðslu og fer ekki mikið fyrir því. 1/64 væri ekki slæmur kostur , en sjálfsagt yrðu 1/50 og 1/43 full dýrir.

Það var stofnaður smábílasafnaraklúbbur í kringum 2010 en sá klúbbur dó drottni sínum nokkrum árum seinna. Á facebook er safnarahópur undir "Bílamódel 1:43 1:24 1:18" þar eru oft skemmtilegar umræður og verið að selja og kaupa bíla.


Hér á eftir er vísanir í annarsvegar, þau farartæki sem mér hefur auðnast að koma höndum yfir og hinsvegar framleiðendur bíla líkana.
Mynd